Fréttatilkynning: Taílenska búddafélagið heldur upp á hátíðina Loi Krathong
Taílenska búddafélagið heldur sína árlegu Loi Krathong hátíð, laugardaginn 7. nóvember, í sal Ráðhúss Reykjavíkur. Hátíðin hefst klukkan 14:00 og stendur til klukkan 18:00.
Á dagskrá verða taílenskir þjóðdansar og söngvar, seldar verða veitingar á hóflegu verði og einnig verða sölubásar með varningi frá Taílandi og handverki sem unnið hefur verið af Taílendingum á Íslandi.
Hápunkur hátíðarinnar verður á milli klukkan 17:00 og 18:00 en þá fer fram blóma- og kertafleyting á litlu tjörninni fyrir framan inngang Ráðhússins. Reiknað er með að um 300-400 heimagerðum kertaskreytingum verði ýtt á flot.
Verkefnisstjóri hátíðarinnar, Petra Deluxana, veitir nánari upplýsingar í síma 897 3611
Netfang: petrad@internet.is
Nánari upplýsingar um Loi Krathong má finna á http://americanthai.net/loikrathong.aspx
