Fréttir

Ráðgjafa- og samskiptavefur fyrir börn - Heyrumst.is

2.11.2009 Fréttir

Heyrumst.is er nýr vefur á vegum Barnaheilla, Save the Children, á Íslandi. Vefurinn er á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku, og er ætlaður börnum og ungmennum undir 18 ára aldri.

Hægt er að fá ráðgjöf með því að senda póst í gegnum síðuna og svar berst innan sjö daga frá ráðgjafa Barnaheilla. Fyllsta trúnaðar er heitið. Þá geta notendur komið skoðunum sínum á framfæri á vefnum og lesið skoðanir annarra.

Vefslóðin er www.heyrumst.is

 



Senda grein