TÖLUM SAMAN - VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR AFHJÚPAR VERK UNNIÐ AF SÖGUHRING KVENNA
Sunnudaginn, 1. nóvember kl. 14:00 í aðalsafni Borgarbókasafnsins í Grófarhúsi
Undanfarið ár hafa konur af erlendum uppruna hist í Borgarbókasafni Reykjavíkur einu sinni í mánuði ásamt íslenskum kynsystrum sínum til að njóta félagsskapar hver annarrar, deila reynslu sinni og styðja hver aðra á ýmsan máta, meðal annars við það að tala íslensku. Félagsskapurinn kallast Söguhringur kvenna og þangað eru allar konur velkomnar sem hafa áhuga á að hitta aðrar konur í fjölmenningarlegu umhverfi. Konurnar skiptast á sögum um allt mögulegt sem þeim liggur á hjarta, meðal annars um reynslu sína af því að flytjast á milli landa, læra nýtt tungumál og hvernig gengur að samhæfa bakgrunn sinn lífinu í nýju landi. Markmiðið er þó fyrst og fremst að eiga saman notalega samverustund.
Þann 1. nóvember næstkomandi fagnar Söguhringurinn eins árs afmæli og af því tilefni hafa konurnar skapað saman listaverk sem nefnist Tölum saman, undir handleiðslu listakvennanna Fitore Berisha og Helgu Arnalds. Vigdís Finnbogadóttir mun afhjúpa verkið á opinni afmælisdagskrá í aðalsafni Borgarbókasafns í Grófarhúsi kl. 14 sunnudaginn 1. nóvember. Helga Arnalds hefur einnig gert vídeóverk um sköpunarferli verksins og það verður frumsýnt við sama tækifæri. Fólk af erlendum sem og íslenskum uppruna skemmtir með tónlist og dansi og boðið verður upp á veitingar.
Söguhringurinn er samstarfsverkefni Borgarbókasafns og Samtaka kvenna af erlendum uppruna og eftir þetta velheppnaða fyrsta ár er ætlunin að halda áfram af fullum krafti. Þær Paola Cardenas og Kristín R. Vilhjálmsdóttir kynna Söguhringinn frekar á afmælishátíðinni, sem er opin öllum, bæði konum og körlum.
