Þjóðahátíð Vesturlands
Laugardaginn 31. október á milli klukkan 13:00 og 16:00 í íþróttasal Akraness að Jarðarsbakka
Félag nýrra Íslendinga og Rauði Krossinn munu halda Þjóðahátið Vesturlands í þriðja skiptið laugardaginn 31. október næstkomandi. Hátíðin verður haldin í íþróttasal Akraness að Jarðarsbakka á milli klukkan 13:00 og 16:00. Þar verða fulltrúar ýmissa þjóða og munu þeir kynna heimalönd sín, bjóða upp á sýnishorn af matargerð sinni og kynna menningu sína.
- Ef þú vilt taka þátt og hafa kynningarbás fyrir þína þjóð, vinsamlegast hafðu samband við Shyamali á netfangið: shyamalig@gmail.com eða í síma 696-7427.
- Ef þú vilt vera með atriði hafðu þá samband við Pauline á netfangið: akranes.celt@gmail.com
- Ef þú vilt einfaldlega njóta hátíðarinnar þá þarftu bara að mæta á staðinn með bros á vör.
Laugardagurinn 31. október er Hrekkjavaka. Í tilefni dagsins bjóða hátíðarhaldarar börnunum að koma í skemmtilegum búningum og taka þátt í Scottish stall Halloween leik. Verðlaun verða veitt fyrir bestu búningana og sýningar.
