Fréttir

Könnun á viðhorfum og aðstæðum innflytjenda á Íslandi

26.10.2009 Fréttir

Um átta hundruð þátttakendur af erlendum uppruna lögðu rannsókninni lið en listi með á annað hundrað spurningum var lagður fyrir á vinnustöðum eða póstsendur til viðkomandi einstaklinga.

Margt áhugavert kemur í ljós þegar niðurstöður könnunarinnar eru skoðaðar og varpar hún m.a. ljósi á eftirfarandi spurningar:

  • Hve hátt hlutfall svarenda á sitt eigið húsnæði?
  • Hversu tekjuhár er þessi hópur landsmanna?
  • Hversu hátt hlutfall hefur skrifað undir ráðningarsamning?
  • Hafa þátttakendur áhuga á að læra íslensku?
  • Er áhugi fyrir því að taka þátt í starfi stjórnmálaflokks á Íslandi?

Styrktaraðilar könnunarinnar eru Alþýðusamband Íslands, félags- og tryggingamálaráðuneytið, Lýðheilsustöð, Reykjavíkurborg, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök atvinnulífssins, Vinnumálastofnun og Þróunarsjóður innflytjendamála.

Könnunin er samstarfsverkefni Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og Fjölmenningarseturs en öll úrvinnsla og skýrslugerð var í höndum Félagsvísindastofnunar.

Helstu niðurstöður á öðrum tungumálum:



Senda grein