Fréttir
Nemendur þurfi ekki að skila inn vottorðum
Menntamálaráðuneytið hefur, að tilmælum Haraldar Briem sóttvarnarlæknis, sent stjórnendum framhaldsskóla bréf þar sem fram kemur að lögð sé áhersla á að nemendur þurfi ekki að skila inn læknisvottorðum í veikindum. Þá hefur því verið beint til vinnuveitenda að þeir krefji starfsmenn ekki um vottorð vegna þess álags sem nú er á heilsugæslustöðvum.
(Frétt tekin af mbl.is)
