Fréttir
Árleg bólusetning gegn inflúensu
Árleg bólusetning gegn inflúensu er hafin á heilsugæslustöðvum. Bólusett er gegn inflúensu af A og B stofni, en ekki gegn svokallaðri svínaflensu A (H1N1)v – væntanlega verður bólusett gegn henni í byrjun nóvember. Þeir sem eru 60 ára og eldri, starfsfólk heilbrigðisþjónustu og sjúklingar sem þjást af langvinnum hjarta-, lungna-, nýrna- og lifrarsjúkdómum, sykursýki, illkynja sjúkdómum og öðrum ónæmisbælandi sjúkdómum fá bólusetningu sér að kostnaðarlausu. Þeir þurfa þó að borga komugjald, fimm hundruð til þúsund krónur
( frétt tekin af www.ruv.is )
