Litrík menning - gagnkvæm miðlun
Gerðubergi 24. -25. október
Helgina 24.-25. október næstkomandi verður dagskrá í Gerðubergi undir yfirskriftinni Litrík menning – gagnkvæm miðlun. Dagskráin er haldin í tilefni Breiðholtsdaga og stendur frá kl. 13 til 17 báða dagana. Markmiðið er að kynna sérstaklega þá þjónustu sem höfðar til íbúa af erlendum uppruna og að vekja athygli á jákvæðum áhrifum fólks af ólíku þjóðerni á menningarlíf hér á landi. Flóamarkaður verður í húsinu og dagskrá fyrir börn.
Fyrirtæki og stofnanir sem sérstaklega sinna íbúum af erlendum uppruna og málefnum þeirra kynna starfsemi sína. Má þar nefna Alþjóðahús, Fjölmenningarsetur, Þjónustumiðstöðvar, Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Samtök kvenna af erlendum uppruna, Söguhring kvenna og Fjölskyldumorgna á vegum Borgarbókasafns o.fl.
Íbúar af erlendum uppruna hafa löngum lífgað upp á menningu hér á landi. Í umræðusmiðjum á bókasafni segja einstaklingar frá reynslu sinni undir yfirskriftinni Litrík menning – gagnkvæm miðlun. Haldin verða stutt erindi og boðið upp á umræður á eftir. Meðal þeirra sem taka þátt eru Pétur Jónsson tónmenntakennari í Austurbæjarskóla, Fitore Berisha listakona frá Kosovo, María Priscilla Zanoria verslunar- og veitingastofurekandi frá Filippseyjum og fleiri. Umræðusmiðjur verða laugardag og sunnudag kl. 15.00-16.30.
Flóamarkaður verður starfræktur í húsinu kl. 13-17 þessa daga. Öllum er frjálst að taka þátt, hvort sem selt er handverk, heimagerðar sultur eða varningur úr geymslunni. Sölurými er takmarkað og því nauðsynlegt að skrá þátttöku á gerduberg@reykjavik.is eða í síma 575 7700 fyrir miðvikudaginn 21. október. Ekkert þátttökugjald.
Sóla á sögubílnum Æringja tekur á móti börnum á bókasafninu laugardag og sunnudag kl. 14. Sóla er dóttir Grýlu en allt öðruvísi en systur hennar Bóla og Leiðindaskjóða því hún strauk ung að heiman og hefur ferðast víða um lönd og lært ógrynni af sögum. Hún er mikil heimsdama en að sama skapi litrík og dularfull. Börnin hlýða á sögur hjá Sólu í bókasafninu en býðst einnig að skoða sögubílinn sem staðsettur verður á torginu við Gerðuberg.
Dagskráin er öllum opin og aðgangur er ókeypis.
- Nánari upplýsingar veitir: Margrét Valdimarsdóttir, verkefnastjóri, Menningarmiðstöðin Gerðuberg, s: 575 7700, 848 0683.
