Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt
Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt hefjast hjá Námsmatsstofnun 30. nóvember næstkomandi fyrir þá sem hafa skráð sig í próf fyrir 10. nóvember. Þeir sem skrá sig eftir þann tíma eiga kost á því að taka próf vorið 2010.
Prófin verða haldin í Reykjavík og utan höfuðborgarsvæðisins ef næg þátttaka fæst.
Skráning í prófin hefst 15. september nk. og fer hún fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar, www.namsmat.is. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um hvar prófin fara fram, sýnishorn af verkefnum og prófkröfur. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 550-2400.
Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7.000 krónur.
