Fréttir
Útivistartími barna breytist í dag
Útivistartími barna og unglinga breytist í dag, 1. september. Börn, 12 ára og yngri, mega vera úti til klukkan 20:00 og unglingar, 13-16 ára, til klukkan 22:00. Bregða má út af reglunum ef unglingar, 13-16 ára, eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta-, eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár.
