Fréttir

Birting kynþáttafordóma á 21. öldinni

25. ágúst klukkan 12-13 í Odda, stofu 101

24.8.2009 Fréttir

Fyrsta málstofa Rannsóknaseturs í barna- og fjölskylduvernd (RBF) og félagsráðgjafardeildar HÍ haustið 2009 verður haldin þriðjudaginn 25. ágúst kl. 12-13 í Odda, stofu 101. Þá mun Dr Ronald E. Hall, dósent við félagsráðgjafardeild Michigan State University, fjalla um birtingu kynþáttafordóma á 21. öldinni.

Hall hefur skrifað fjölda greina og bóka sem tengjast hörundslit og kom m.a. fram með hugtakið bleaching syndrome eða bleikiheilkenni til að útskýra mismunun meðal litaðs fólks. Hall bar vitni sem sérfræðingur í fyrsta dómsmálinu í Bandaríkjunum um mismunun milli blökkumanna, Morrow gegn IRS, árið 1990.

Málstofan er öllum opin og er aðgangur ókeypis.

Nánari upplýsingar má nálgast hjá Rannsóknasetri í barna- og fjölskylduvernd (RBF)
Sími: 525-5200
Heimasíða: www.rbf.is
Netfang: rbf@hi.is



Senda grein