Álagningarseðlar á leiðinni
Landsmenn geta nálgast álagningarseðil sinn á þjónustuvefnum skattur.is með kennitölu og veflykli frá morgundeginum, miðvikudeginum 29. júlí, kl. 16. Hafi fólk glatað veflykli sínum má óska eftir nýjum á skattur.is og fá hann sendan í heimabanka eða póstlagðan á lögheimilið. Skv. upplýsingum Ríkisskattstjóra verða seðlar bornir út fimmtudaginn 30. júlí til þeirra sem ekki afþökkuðu álagningarseðla á pappír.
Með örfáum undantekningum verða inneignir lagðar inn á bankareikninga föstudaginn 31. júlí eða greiddar út með ávísunum. Sé inneign tilgreind á álagningarseðli, en ekki getið um útborgun hennar, þá veitir innheimtumaðurinn í viðkomandi umdæmi nánari upplýsingar. Upplýsingar um sjálfa álagninguna veitir skattstjóri, en símanúmer skattstjóra og innheimtumanns er að finna á álagningarseðlinum.
Frétt tekin af www.mbl.is
