Fréttir
Skýringar við Icesave samninginn birtar
Nú er hægt að nálgast skýringar við greinar Icesave samningsins á www.island.is. Öll ákvæði samningsins eru skýrð lið fyrir lið en meiri áhersla er lögð á þau atriði sem telja má að skipti Ísland meira máli en önnur. Fjölmörg lögfræðileg hugtök og heiti eru sérstaklega tekin fyrir og útskýrð og sett í samhengi við alþjóðasamninga.
