Fréttir

Alþjóðlegi flóttamannadagurinn 20. júní

19.6.2009 Fréttir

Flóttamenn, 42 milljónir einstaklinga, sem hafa verið flæmdir burt frá heimaslóðum sínum, vegna stríðsátaka, náttúruhamfara, ofbeldis, hungurs eða annars, búa við eilífa baráttu hvern dag, fyrir lífi sínu og heilsu.

Fylgikvillar efnahagskrísu, eins og þeirrar sem nú gengur yfir heiminn, eru m.a. þær að mannúðarmál geta gleymst og þeir sem eru í hvað erfiðastri stöðu og þurfa hvað mest á hjálp að halda eru vanræktir. Við blasir að neyðaraðstoð verði skorin niður og þessar 42 milljónir fólks gætu þannig átt enn erfiðari tíma í vændum. Nauðsynlegt er að tryggja að þessi stóri hópur íbúa heimsins gleymist ekki og er þema flóttamannadagsins í ár því ,,Real People, Real Needs” (raunverulegt fólk, raunveruleg neyð).

Alþjóðlegi flóttamannadagurinn er haldinn 20. júní ár hvert. Víðsvegar um heiminn eru haldnir viðburðir til að vekja athygli á málefnum flóttamanna og hælisleitenda. Í tilefni af deginum í ár ætla Mannréttindaskrifstofa Íslands, Rauði kross Íslands og Alþjóðahús, í samstarfi við flóttamenn og hælisleitendur á Íslandi, að hafa opið hús næstkomandi laugardag, á alþjóðadegi flóttamanna. Ýmsir listamenn koma fram og verður gestum meðal annars boðið að bragða á veitingum og kaffi frá þeim löndum sem stærstu hópar flóttafólks á Íslandi koma frá, um leið og vakin er athygli á málefnum flóttamanna og hælilsleitenda.

Dagskráin stendur frá klukkan 13:00 til 15:00 í Start Art listamannahúsi, að Laugavegi 12b (kort).



Senda grein