Hlutfall erlendra ríkisborgara hæst á Íslandi samanborið við hin Norðurlöndin
Á síðastliðnum áratug hefur hlutfall erlendra ríkisborgara af mannfjölda aukist mest á Íslandi samanborið við hin Norðurlöndin. Um aldamótin var hlutfall erlendra ríkisborgara af mannfjöldanum á Íslandi 2,6% en í byrjun árs 2009 var hlutur þeirra kominn upp í 7,6 af hundraði. Í Svíþjóð var þróunin mun jafnari á þessu tímabili og jókst hlutur erlendra ríkisborgara af
mannfjöldanum þar úr 5,5% í 5,7% (árið 2008), í Danmörku fór þetta hlutfall úr 4,7% í 5,8% og í Noregi úr 4% í 6,3%.
Þá var hlutur erlendra ríkisborgara af heildarmannfjölda næstminnstur í byrjun áratugarins á Íslandi, samanborið við hin Norðurlöndin, aðeins í Finnlandi var hlutfallið lægra eða 1,7%. Þann 1. janúar síðastliðinn var hlutfallið orðið hæst á Íslandi (7,6%) en hafði aðeins hækkað um eitt prósentu stig (2,7%) í Finnlandi á sama tímabili.
Þann 1. janúar síðastliðinn voru 24.379 einstaklingar með erlendan ríkisborgararétt búsettir á Íslandi, Pólverjar þeirra fjölmennastir eða 11.003.
