Fréttir

Er fólki mismunað hérlendis á grundvelli kynþáttar eða þjóðernis?

Könnun á viðhorfum til mismunar á Íslandi

Ari Jónsson 16.6.2009

Niðurstöður viðhorfskönnunar félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Mannréttindaskrifstofu benda til þess að meirihluti þjóðarinnar telur að fólk sé áreitt eða því mismunað vegna kynþáttar eða þjóðernis. Tæp 57 prósent þátttakenda í könnunninni svöruðu því að þeir teldu algengt eða mjög algengt að fólki væri mismunað, á móti 42 af hundraði sem töldu það óalgengt eða mjög óalgengt.

Þegar niðurstöður könnunarinnar eru bornar saman við meðaltal svarenda í ríkjum ESB má sjá að Íslendingar eru þónokkuð frá hlutfalli þeirra en ríflega 65% þátttakenda á ESB-svæðinu töldu mismunun vegna kynþátttar eða þjóðernis algenga eða mjög algenga í sínu landi. Þá má sjá að 75% þátttakenda í Danmörku og 76% í Svíþjóð töldu að mismunun ætti sér stað í þeirra heimalandi.

Þrátt fyrir jákvæðara viðhorf meðal Íslendinga þýðir það ekki að fólki sé síður mismunað hér eða það áreitt, því tæplega 26% svarenda á Íslandi höfðu orðið vitni að mismunun eða áreiti vegna kynþáttar eða þjóðernis en einungis 14% þátttakenda í ríkjum ESB (meðaltal). Hlutfallið var jafnframt lægra í Danmörku en Íslandi, eða 25% og 24% í Svíþjóð.



 

Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.