Fréttir

Ný starfsstöð Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna hefur verið opnuð í Sóltúni 26

22.5.2009 Fréttir

Þeir sem leita til starfsstöðvar Ráðgjafarstofunnar í Sóltúni geta komið fyrirvaralaust og þurfa ekki að panta tíma í ráðgjöf. Þar eru veittar grundvallarleiðbeiningar um möguleg úrræði fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum. Ef þörf er á frekari aðstoð er fólki vísað áfram til Ráðgjafarstofunnar á Hverfisgötu þar sem farið er nánar ofan í saumana á aðstæðum hvers og eins.

Í Sóltúni starfa 10 manns og á Hverfisgötu er verið að fjölga starfsfólki þannig að innan skamms munu alls 29 starfsmenn sinna ráðgjöf um fjármál heimilanna.



Senda grein