Fréttir

Ætlar þú með bílinn út í heim? -Tilkynning frá Norrænu

22.5.2009 Fréttir

Smyril Line vill benda viðskiptavinum sínum, sem taka bílinn sinn með sér til útlanda, að ef eignarleigufyrirtæki eru skráð sem eigendur bíla er nauðsynlegt að afla samþykkis hlutaðeignandi fyrirtækis fyrir því að flytja bílinn á milli landa.

Smyril Line vill því góðfúslega benda viðskiptavinum sínum á að hafa samband við sitt eignarleigufyrirtæki í tíma og óska eftir skriflegu leyfi ef ferðinni er heitið úr landi með Norrænu svo ekki þurfi að koma til þess að viðskiptavinir þeirra verði stöðvaðir við innritun í Norrænu.



Senda grein