Fréttir

Frumkvöðlanámskeið fyrir innflytjendur 16. - 30. maí 2009

Ari Jónsson 12.5.2009

Námið er skipulagt þrjá laugardaga í maí þar sem þátttakendur fá þjálfun í þróun viðskiptahugmynda, gerð viðskiptaáætlunar, fjármögnun og samningatækni. Gert er ráð fyrir að nemendur vinni drög að viðskiptaáætlun með aðstoð leiðbeinanda.

Námskeiðið er 24 kennslustundir, haldið frá kl. 10-16 eftirfarandi laugardaga:

  • 16. maí - Viðskiptahugmyndin: Hugmyndir og viðskiptahugmyndir, hugmyndaleit, stefnumótun, markmiðasetning og vöruþróun. Kynning á forsniði viðskiptaáætlunar og öðrum hjálpargögnum s.s. excelskjölum. Vinnusmiðja og leiðsögn.
  • 23. maí - Viðskiptaáætlun hvað er það? Markaðsgreining, markaðsrannsóknir og markaðsáætlun. Fjármögnun, samskipti við fjármálastofnanir og kynningatækni. Vinnusmiðja með leiðsögn. Gestafyrirlesari frá Þróunarfélagi Austurlands.
  • 30. maí - Kynning á viðskiptahugmyndum þátttakenda: Upprifjun á efni fyrri tíma og farið í sölu- og samningatækni. Vinnusmiðja. Kynning á viðskiptahugmyndum fyrir mögulegum fjármögnunaraðilum - útskrift.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er G. Ágúst Pétursson.

Eftir námskeiðið gefst þátttakendum kostur á að nýta sér aðstoð atvinnuráðgjafa hjá Þróunarfélagi Austurlands. Námskeiðið er styrkt af félagsmálaráðuneytinu en þátttökugjald er 9.000 krónur. Skráning er á www.tna.is, í netfang tna@tna.is og í síma 471-2838 en skráningar þurfa að berast eigi síðar en 14. maí. Hægt er að fá styrki úr starfsmenntasjóðum stéttarfélaganna og hjá Vinnumálastofnun fyrir atvinnuleitendur.

Auglýsing á pdf-formi
 

Fjölmenningarsetur | Árnagötu 2-4 | 400 Ísafjörður | Sími: 450 3090 | Fax: 450 3005 | Netfang: info@mcc.is
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.