Ný ríkisstjórn mynduð
Búið er að mynda nýja ríkisstjórn og er það fyrsta meirihlutastjórn tveggja vinstri flokka á lýðveldistímanum, eða frá árinu 1944 til dagsins í dag.
Samfylking og Vinstri græn tilnefna, hvor flokkur fyrir sig, fimm ráðherra ásamt því að Ragna Árnadóttir verður áfram dómsmálaráðherra og Gylfi Magnússon heldur ráðherrastöðu sinni en ráðuneyti hans breytist úr viðskiptaráðuneyti yfir í efnahagsráðuneyti.
Aðrir ráðherrar nýrrar stjórnar eru Jóhanna Sigurðardóttir (S) forsætisráðherra, Össur Skarphéðinsson (S) utanríkisráðherra, Árni Páll Árnason (S) félags- og tryggingamálaráðherra, Kristján L. Möller (S) samgönguráðherra, Katrín Júlíusdóttir (S) iðnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon (Vg) fjármálaráðherra, Ögmundur Jónasson (Vg) heilbrigðisráðherra, Katrín Jakobsdóttir (Vg) menntamálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir (Vg) umhverfisráðherra og Jón Bjarnason (Vg) sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Þá verður Ásta R. Jóhannesdóttir, fráfarandi félags- og tryggingamálaráðherra, forseti Alþingis.
Ráðuneytum verður fækkað
Í nýjum stjórnarsáttmála er kveðið á um breytingar á ráðuneytum. Þannig verður komið á einu atvinnuvegaráðuneyti um mitt kjörtímabilið. Í því myndu sameinast sjávarútvegs-, landbúnaðar- og iðnaðarráðuneyti. Þá verður viðskiptaráðuneytinu breytt í efnahagsráðuneyti strax. Þangað flytjist verkefni úr Seðlabankanum og Hagstofunni ásamt ýmsum þáttum úr forsætisráðuneyti. Þá verði samgönguráðuneyti og dómsmálaráðuneyti sameinuð í innanríkisráðuneyti. Breytingar verða gerðar á ráðherraembættum samhliða nýrri hlutverkaskipan ráðuneyta.
Fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar verður haldinn á Akureyri þriðjudaginn 12. maí. Vorþing verður í kjölfarið sett þann 15. maí.
Fyrir frekari upplýsingar, sjá:
- Nýr sáttmáli félagshyggjustjórnar (www.ruv.is)
- www.ruv.is
- www.island.is/endurreisn
