Fréttir

Atvinnurekendur þurfa ekki lengur að tilkynna Vinnumálastofnun um ráðningu á starfsmönnum frá nýju aðildarríkum ESB

8.5.2009 Fréttir

Lög um skráningu á starfsmönnum frá nýju ríkjum ESB féllu úr gildi 1. maí s.l. Atvinnurekendum sem ráða til sín ríkisborgara frá frá þessum ríkjum, þ.e. Eistlandi, Lettlandi, Litháen, Póllandi, Slóvakíu, Slóveníu, Tékklandi og Ungverjalandi, ber því ekki lengur að tilkynna um ráðninguna til Vinnumálastofnunar.

Samt sem áður verður viðhaft eftirlit með vinnustöðum þar sem grunur leikur á að ekki sé farið eftir settum reglum varðandi skyldur gagnvart opinberum eftirlitsstofnunum.



Senda grein