Alþingiskosningar 2009 - niðurstöður
Stjórnin náði hreinum meirihluta
Í kosningunum, þann 25. apríl s.l., gengu 85% kosningabærra manna að kjörborðinu. Samfylkingin fékk 30% atkvæða og 20 þingmenn, Sjálfstæðisflokur (23,7%) 16 þingmenn, Vinstri græn (21,7%) 14 þingmenn, Framsókn (14,8%) 9 þingmenn og Borgarahreyfing (7,2%) 4 þingmenn. Rúm 3% kjósenda skiluðu auðu og 0,3% kjörseðla voru ógildir.
Kosningartölur eru á textavarpinu, á síðu 700 og á kosningavef RÚV - http://www.ruv.is/kosningar/
Samkvæmt lokatölum talningar er hlutfall kvenna á þingi 42,86% - 27 konur komast á þing og 36 karlar. Hlutfall kvenna á þingi hefur aldrei verið hærra.
Úrslitin eru á þá leið að fráfarandi ríkisstjórn fær hreinan meirihluta og eru viðræður hafnar um myndun nýrrar ríkisstjórnar milli formanna Samfylkingar og Vinstri grænna.
(Frétt tekin af www.ruv.is)
