Málefni innflytjenda - nýtt nám
- nýtt nám á meistarastigi hjá Endurmenntun HÍ

Í haust fer af stað hjá Endurmenntun Háskóla Íslands ný námsbraut á meistarastigi um málefni innflytjenda. Þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á námsbraut af þessu tagi hér á landi. Hugmyndin um þróun námsbrautar af þessu tagi sprettur upp úr mikilli þörf fyrir menntaða sérfræðinga á sviðum innflytjendamála, sem þekkja málefnið þvert á fagsvið. Markmiðið með náminu er vinna með þá reynslu og þekkingu sem til er og byggja upp fræðilega og hagnýta sérþekkingu með áherslu á gagnkvæma aðlögun.
Þetta er tveggja missera, 45 ECTS eininga nám á framhaldsstigi háskóla sem er metið til eininga í meistaranám í lýðheilsuvísindum innan heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.
Þverfagleg nálgun
Í náminu er viðfangsefnið nálgast á þverfaglegan hátt og munu nemendur m.a. fjalla um kenningar, viðhorf, trúarbrögð, búferlaflutninga, menntamál, lög og mannréttindi, heilbrigðismál og túlkaþjónustu. Einnig verður hugmyndafræði breytingastjórnunar og leiðtogafærni hluti af náminu sem gerir nemendur í stakk búna til að leiða breytingar á sviði innflytjendamála og margmenningar á sínu sviði, hvort sem það er vinnustaður, sveitarfélag eða fræðasvið.
Fyrir núverandi og tilvonandi starfsmenn á sviðinu
Námið mun gagnast þeim einstaklingum beint sem vinna nú þegar með innflytjendum í sínum daglegu störfum víða í samfélaginu, en líka þeim sem hafa áhuga á málefninu og vilja búa sig undir störf í þágu þess. Umsækjendur þurfa að hafa lokið námi á grunnstigi háskóla (BS/BS/BEd) eða sambærilegu námi.
Þátttaka óháð búsetu
Hægt er að stunda námið í fjarnámi jafnt sem staðnámi. Fjarnámið fer fram á netinu. Þátttaka er því hvorki háð búsetu né fjarfundabúnaði heldur getur hver og einn stundað stóran hluta námsins við nettengda tölvu. Fjarnemar þurfa þó að mæta í ákveðnar staðbundnar lotur.
Fjölmargir samstarfsaðilar
Unnið var að þróun námsins í tæp tvö ár og á þeim tíma voru fjölmargir sérfræðingar kallaðir til samstarfs og faglegrar ráðgjafar. Meðal þeirra sem komu að þeirri vinnu voru: Alþjóðahús, Félags-, mennta-, og heilbrigðisvísindasvið HÍ, Fjölmenningarsetur, Geðsvið LSH, Landlæknisembættið, Leikskólasvið Reykjavíkur, Miðstöð heilsuverndar barna, Miðstöð í lýðheilsuvísindum við HÍ, MIRRA – MiðstöðInnflytjendaRannsóknaReykjavíkurAkademíunni, Prestur innflytjenda, Rauði krossinn, Samtök íslenskra sveitarfélaga og Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða.
Umsóknarfrestur og nánari upplýsingar
Umsóknarfrestur er til og með 11. maí næstkomandi.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Rútsdóttir, verkefnastjóri námsins í síma 525 5292 en einnig má sjá frekari upplýsingar hér:
http://www.endurmenntun.hi.is/Forsida/Namsframbod/Namsamhlidastarfi/Nanarumnamid/8700H09
