Fréttir
Fulltrúar frá taílenska sendiráðinu í Danmörku verða á Íslandi 9. og 10. maí nk.
Fulltrúar frá taílenska sendiráðinu í Danmörku verða á Íslandi 9. og 10. maí næstkomandi til að taka á móti umsóknum um vegabréf og umsóknum um skráningu barna sem fæðst hafa á Íslandi.
Gögn sem þurfa að fylgja með umsókn fyrir fullorðna ( eldri en 20 ára)
- Umsókn um vegabréf (eyðublöð til hjá Búddistafélagi Íslands)
- Nafnskírteini frá Taílandi með upplýsingum um 13 stafa ID númer
(einnig ljósrit af nafnskírteininu )
- Vegabréf umsækjanda
- Ljósrit af fyrstu tveimur blaðsíðum í vegbréfinu (mynd og upplýsingar um gildistíma vegabréfs)
- Ljósrit af dvalarleyfi (skírteini) á Íslandi
- Umslag þar sem búið er að skrifa utan á nafn umsækjanda og heimilisfang á Íslandi (til að senda til baka)
- 290 kr danskar
Gögn sem þurfa að fylgja með umsókn fyrir yngri en 20 ára
- Umsókn um vegabréf (eyðublað til hjá Búddistafélagi Íslands)
- Nafnskírteini frá Taílandi með upplýsingum um 13 stafa ID númer og ljósrit af nafnskírteininu (ef við á)
- Vegabréf umsækjanda (ef umsækjandi hefur áður fengið vegabréf)
- Fæðingarvottorð og ljósrit af vottorðinu.
- Hjúskaparvottorð foreldra og ljósrit af vottorðinu
- Vegabréf foreldra og ljósrit af nafnskírteini foreldra frá Taílandi með upplýsingum um 13 stafa ID númer.
- Forsjárgögn eða upplýsingar um hver sé með forræði barnanna. Foreldrar eða forráðamenn þurfa að skrifa undir umsókn fyrir börnin.
- Umslag þar sem búið er að skrifa utan á nafn umsækjanda og heimilisfang á Íslandi (til að senda til baka)
- 290 kr danskar
Þann 19. apríl á milli kl 13.00 – 16.00 er hægt að koma í húsnæði Búddistafélags Íslands, Víghólastíg 21, 200 Kópavogi og fá aðstoð og upplýsingar.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Búddistafélagi Íslands í síma 564-0315 eða hjá Andreu Sompit Siengboon í síma 896-2170
