Fréttir

Auglýsing um próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið vekur athygli á eftirfarandi

7.4.2009 Fréttir

Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt hefjast hjá Námsmatsstofnun hinn 8. júní næstkomandi fyrir þá sem hafa skráð sig í próf fyrir 15. maí. Þeir sem skrá sig eftir þann tíma eiga kost á því að taka próf í nóvember/desember á þessu ári. Prófin verða haldin í Reykjavík og utan höfuðborgarsvæðisins ef næg þátttaka fæst.

Skráning í prófin fer fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar, www.namsmat.is, og þar er einnig að finna nánari upplýsingar um það í hvaða húsnæði prófin fara fram, sýnishorn af verkefnum og prófkröfur. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 550 2400. Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7000 krónur.

Auglýsing um próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt - pdf



Senda grein