Fréttir
Ert þú rétt skráður?
Af gefnu tilefni er því beint til ríkisborgara frá ríkjum innan EES að athuga skráningarstöðu sína hjá Þjóðskrá. Í þjóðskrá eiga allir að vera skráðir sem hafa fasta búsetu (lögheimili) hér á landi. Erlendur ríkisborgari sem fengið hefur dvalarleyfi hér á landi er skráður í þjóðskrá. Til þess að njóta fullra réttinda er nauðsynlegt að hafa skráð lögheimili hér á landi og vera skráður í þjóðskrá en ekki á utangarðsskrá. Þeir sem einungis eru skráðir á utangarðsskrá hafa ekki löglega skráningu í landinu.
Starfsfólk Fjölmenningarseturs getur aðstoðað þá sem vilja athuga með skráningarstöðu sína og er þá hægt er að hafa samband með tölvupósti á neðangreind netföng eða hringja í síma 450-3090 og óska eftir aðstoð.
polski@mcc.is (á pólsku) - informacije@mcc.is (á króatísku/serbnesku) - tailenska@mcc.is (á taílensku) - og þeir sem tala íslensku eða önnur tungumál geta sent tölvupóst á info@mcc.is

