Fréttir

Hjálparvakt tannlækna fyrir börn og unglinga

6.4.2009 Fréttir

Tannlæknadeild Háskóla Íslands og Tannlæknafélag Íslands munu á næstunni leggja sitt af mörkum til að aðstoða fjölskyldur sem búa við þrengingar.

Börnum og unglingum, 18 ára og yngri, verður boðin ókeypis tannlæknaþjónusta laugardagana 4. apríl, 18. apríl, 9. maí og 23. maí frá kl. 10.00-13.00 í húsnæði Tannlæknadeildar Háskóla Íslands, Tanngarði.

Ekki er tekið við tímapöntunum en ráðstafanir eru gerðar til þess að biðtími verði ávallt hóflegur.

Nánari upplýsingar eru veittar hjá Tannlæknadeild HÍ í síma: 525-4850

 Frétt tekin af www.tr.is



Senda grein