Fréttir
Göngudeild sóttvarna er flutt að Álfabakka 16
Miðstöð sóttvarna hefur breytt um nafn og kallast nú Göngudeild sóttvarna. Þá hefur starfsemin flutt frá Þönglabakka 1 og er nú staðsett að Álfabakka 16, 109 Reykjavík (kort).
Nýja húsnæðið er merkt: Heilsugæslan – Stjórnsýsla og gengið er inn um aðalinngang á vesturhlið hússins.
Starfsemin helst óbreytt og hófst reglubundin móttaka í hinu nýja húsnæði mánudaginn 23. mars síðastliðinn.
Upplýsingar um þjónustuna eru veittar á Göngudeild smitsjúkdóma í síma 585-1390 og á vef deildarinnar http://www.heilsugaeslan.is/?PageID=107
