Fréttir
TAKK - herferð gegn fordómum
Í tilefni af alþjóðadegi gegn kynþáttamisrétti þann 21. mars
Mannréttindaskrifstofa, í samstarfi við AUGA, hefur ráðist í auglýsingaherferð gegn fordómum gagnvart innflytjendum. Tilefni þessarar herferðar er Evrópuvika gegn kynþáttamisrétti sem hófst þann 14. mars síðastliðinn.
Markmið auglýsingaherferðarinnar er að vekja fólk til umhugsunar um allt það jákvæða sem fjölmenning hefur í för með sér fyrir íslenskt samfélag. Jafnframt er tilgangurinn sá að þakka innflytjendum á opinberum vettvangi fyrir að auðga mannlíf og menningu landsins og fyrir að hafa tekið þátt í að byggja hér upp fjölbreytt og öflugt samfélag.
Auglýsingaherferðin mun standa í tvær vikur í sjónvarpi, blöðum, tímaritum, í formi auglýsinga á strætóskýlum og á netinu. Herferðin er unnin í sjálfboðavinnu af auglýsingastofum innan Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA). Afraksturinn verður svo birtur hjá eftirtöldum miðlum: Árvakri, Fréttablaðinu, Afa JCDecaux, Sjónvarpinu, Stöð 2, Skjá einum, Mbl.is og Vísi.is. Þá mun Capacent vinna að rannsókn tengda átakinu.
Nánari upplýsingar um herferðina, ásamt ágripi af starfi Mannréttindaskrifstofu Íslands og AUGA, er að finna á heimasíðu Mannréttindaskrifstofu: www.humanrights.is

