Fréttir

Verkefnið Ný tækifæri

16.3.2009 Fréttir

Verkefnið Ný tækifæri er samstarfsverkefni Þjónustumiðstöðvar Breiðholts, Frístundamiðstöðvarinnar Miðbergs (ÍTR), Vinnuskóla Reykjavíkur, Rauða krossins og Alþjóðahúss.

Verkefnið hlaut styrk úr Forvarna og framfarasjóði Reykjavíkur á síðasta ári og auk framangreindra samstarfsaðila koma Námsflokkar Reykjavíkur í Mjóddinni að þessari vinnu, Fjölbrautarskólinn í Breiðholti og fleiri.

Verkefninu er ætlað að stuðla að auknum atvinnutækifærum ungmenna af erlendum uppruna í fjölbreyttum störfum sem borgin býður upp á fyrir börn og unglinga. Starfsþjálfun og fræðsla, svo sem sjálfstyrking, túlkanámskeið, íslenskukennsla, skyndihjálp og millimenningarfræðsla eru dæmi um viðfangsefni sem unnið er með.

Verkefnið Ný tækifæri hefur það að leiðarljósi að nýta bakgrunn og móðurmál þátttakenda þeim til framdráttar í störfum með börnum. Með aðkomu þeirra í uppeldis og frístundastörfum er komið til móts við stefnu borgarinnar með það meginmarkmið að leiðarljósi að veita einstaklingsmiðaða þjónustu og mæta
hverjum og einum á hans eigin forsendum.

Þátttakendur á námskeiðinu eru 14 stúlkur sem koma frá átta þjóðlöndum. Tungumálaþekking hópsins er mikill fjársjóður því stúlkurnar tala samtals 12 tungumál.

Á næstu vikum verða stúlkurnar afar sýnilegar í stofnunum í Breiðholtinu, í frístundaheimilum, leikskólum, grunnskólum og víðar þar sem þær munu vera í starfskynningu einu sinni í viku en stúlkurnar vinna einkum með börnum sem tala móðurmál þeirra.



Senda grein