Félagsstarf unglinga

  • Víðsvegar um landið stunda börn og unglingar íþróttir, tónlistar- og dansnám og taka þátt í margskonar námskeiðum sem oftar en ekki vekja hjá þeim áhuga á frekari ástundun.
  • Sum sveitarfélög greiða niður þátttökugjöld vegna íþrótta-, lista- og æskulýðsstarfsemi yngri íbúa sinna. Misjafnt er eftir sveitarfélögum hvaða reglur gilda um niðurgreiðslu. Nánari upplýsingar er að finna á vefjum sveitarfélaga.
    Sveitarfélög
  • Á vefnum www.fristund.is er hægt að fá upplýsingar um íþróttagreinar og aðrar  frístundir sem til boða eru á höfuðborgarsvæðinu á þremur tungumálum, íslensku, ensku og pólsku.
  • Skátar eru félagsskapur sem hittist reglulega á fundum og í hópastarfi ýmiskonar. Stór hluti af því að vera skáti er útivera þar sem farið er í gönguferðir, setið er við varðeld, farið er í tjaldútilegur, hellaskoðanir og fleira í þeim dúr. Skátum eru kenndir notadrjúgir hlutir eins og að hnýta hjúta, lesa á áttavita, kveikja varðeld og fleira. Fjöldi skátafélaga eru starfandi um land allt.
    Bandalag íslenskra skáta
  • Innan margra félagadeilda Rauða krossins er starfrækt fjölbreitt barna- og ungmennastarf.
    Barna- og ungmennastarf RKÍ
  • Unglingadeildir eru starfandi innan Slysavarnarfélagsins Landsbjargar. Unglingadeildir innan Slysavarnarfélagsins Landsbjargar
  • Tónlistarskólar á landinu eru reknir af sveitarfélögum og einkaaðilum. Á vefjum þeirra má fá upplýsingar um starfsemi og nám og þar eru einnig umsóknareyðublöð.
    Tónlistarskólar
  • Kennsla í listdansi hér á landi er í höndum einkaaðila.
  • Í fjölmörgum grunnskólum eru starfræktar skólahljómsveitir. Á vefjum skólanna er nánari upplýsingar um hljómsveitirnar.
  • Skákíþróttin er iðkuð af fólki á öllum aldri hér á landi.
  • Barna- og unglingastarf er í flestum trúfélögum, jafnt innan sem utan þjóðkirkjunnar.
  • Í stærri sveitarfélögum er boðið upp á sumarnámskeið fyrir börn. Á námskeiðunum er tekist á við fjölbreytt og skemmtileg viðfangsefni. Upplýsingar um námskeiðin má fá á vefjum sveitarfélaga, íþróttafélaga og félagsmiðstöðva.
  • Gæsluleikvellir eru starfræktir í flestum stærri sveitarfélögum yfir sumartímann. Þeir eru ætlaðir yngri börnum og er aldurtakmark misjafnt. Nánari upplýsingar finnast á vefjum sveitarfélaganna.





Til baka, Senda grein, Prenta greinina