Börn til 12 ára aldurs
Börn, 12 ára og yngri, eiga ekki að vera á almannafæri eftir klukkan 20 nema þau séu í fylgd með fullorðnum. Á tímabilinu 1. maí til 1. september mega þau vera úti til klukkan 22. Aldurinn miðast við árið sem barnið er fætt en ekki fæðingardag þess.
Réttindi barna
-
Barn hefur rétt til þess að þekkja báða foreldra sína.
-
Það er skylda foreldra að vernda barn sitt gegn andlegu og líkamlegu ofbeldi og öðrum ógnum.
-
Barnið á að fá menntun í samræmi við hæfileika þess og áhugamál.
-
Foreldrar eiga að hafa samráð við barn sitt áður en ákvarðanir í málefnum þess eru teknar. Barnið á að fá að ráða meiru eftir því sem það verður eldra og þroskaðra.
-
Slys á börnum er tíð og því er það skylda fullorðinna að vera meðvituð um umhverfi barnsins. Þegar orsakir slysa eru skoðaðar kemur oft í ljós að koma hefði mátt í veg fyrir slysið með forvörnum og fræðslu.
Barnaverndarnúmerið 112
Slysavarnir barna, á vef Lýðheilsustöðvar
Barnavernd og velferð barna
-
Markmið Barnaverndarlaga er að tryggja að börn sem búa við óviðunandi aðstæður eða börn sem stofna heilsu sinni og þroska í hættu, fái nauðsynlega aðstoð.
-
Lögin taka til allra barna sem eru á yfirráðasvæði íslenska ríkisins.
Barnaverndaryfirvöld eru:

