Foreldrar og börn
Ef upp koma vandamál milli barna og foreldra eða milli fjölskyldu og utanaðkomandi aðila er hægt að leita ráðgjafar á nokkrum stöðum.
Sími: (+354) 691-8644
Félagið veitir ráðleggingar vegna mála er varða feður og börn þeirra, oft vegna umgengnismála. Opið er á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 15–18.
Barnaheill
Sími: (+354) 553-9300
Barnaheill veitir símaráðgjöf á skrifstofutíma, á milli klukkan 9.00 og 16.00, í síma 553-9300.
Vefsíða fyrir ungmenni þar sem hægt er að leita eftir ráðgjöf og upplýsingum. Á vefsíðunni er hægt að leita eftir upplýsingum og hafa samband við ráðgjafa á ensku og pólsku.
Vímulaus æska og foreldrasíminn
Sími: (+354) 581-1799
Neyðarsími fyrir foreldra sem er opinn allan sólahringinn, alla daga ársins. Þjónustan fer fram á íslensku.
Regnbogabörn
Mjósundi 10 220 Hafnafirði
Sími: (+354) 545-0100
Regnbogabörn eru fjöldasamtök áhugafólks um einelti. Samtökin bjóða upp á viðtalsþjónustu fyrir þolendur, gerendur og foreldra. Samtökin reyna að veita öllum lið sem til þeirra leita, óháð tungumálum.
Hitt húsið
Pósthússtræti 3–5. 101 Reykjavík
Símar: (+354) 520-4611, 520-4621
Hjá Hinu húsinu er veitt alhliða ráðgjöf fyrir ungt fólk. Þar er að finna verkefnið Brú á milli menningarheima sem er ætlað ungu fólki (16–25 ára) af erlendum uppruna sem er búsett í Reykjavík. Íslendingar eru einnig velkomnir. Verkefninu er ætlað að rjúfa félagslega einagrun og styrkja einstaklinga við að aðlagast nýju samfélagi. Leiðbeinendurnir eru til þess að aðstoða ungt fólk. Hist er einu sinni í viku. Þá eru viðtalstímar kl. 9–15 alla virka daga.

