Fæðingar- og foreldraorlof
Foreldrar eiga rétt á launuðu orlofi við fæðingu barns, þegar það ættleiðir barn eða tekur barn í varanlegt fóstur. Foreldrar fá annað hvort orlofsgreiðslur eða fæðingarstyrk úr Fæðingarorlofssjóði en það fer eftir stöðu þeirra á vinnumarkaði.
Einnig er hægt að taka foreldraorlof en það er ólaunað leyfi sem foreldrar geta fengið fram að 8 ára aldri barns.
Umsókn um fæðingarorlof
-
Sækja þarf um fæðingarorlof til Fæðingarorlofssjóðs hjá Vinnumálastofnun. Leiðbeiningar og eyðublöð er hægt að fá hjá þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar um land allt.
-
Umsókn um fæðingarorlof þarf að skila inn í síðasta lagi sex vikum fyrir áætlaðan fæðingardag en þremur vikum fyrir ef sótt er um fæðingarstyrk.
-
Tilkynna þarf vinnuveitenda um fæðingarorlofið í síðasta lagi átta vikum fyrir áætlaðan fæðingardag barnsins.
Lengd orlofs
-
Hvort foreldri um sig á rétt til fæðingarorlofs í þrjá mánuði. Foreldrar geta ekki nýtt fæðingarorlofið frá hvort öðru nema um sérstakar aðstæður sé að ræða. Það þýðir að annar aðilinn getur til dæmis ekki verið í fæðingarorlofi í 4 mánuði þó hinn sé aðeins í orlofi í 2 mánuði. Hins vegar eiga foreldrarnir sameiginlegan rétt á þremur mánuðum til viðbótar sem þeir geta skipt á milli sín að vild.
-
Réttur til fæðingarorlofs og fæðingarstyrks fellur niður við 18 mánaða aldur barns.
Ítarlegri upplýsingar má nálgast á vefsíðu Fæðingarorlofssjóðs og hjá Ísland.is
Greiðslur
-
Gert er ráð fyrir að þeir sem þiggja greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði stundi ekki vinnu á meðan þær vara.
-
Greiðslur nema 80% af meðaltali heildarlauna foreldris á ákveðnu tímabili fyrir fæðingu barns. Greiðslur geta þó aldrei farið niður eða upp fyrir viss mörk sem ákveðin eru á hverjum tíma.
Foreldraorlof
-
Foreldraorlof er ólaunað orlof frá störfum sem hvort foreldri um sig getur tekið í allt að 13 vikur til að annast barn sitt. Þessi réttur fellur niður við 8 ára aldur barnsins. Orlofið má taka í einu lagi, skipta niður í styttri tímabil eða með minnkuðu starfshlutfalli. Foreldrar geta ekki framselt þennan rétt sín á milli þannig annað foreldrið nýti rétt hins til foreldraorlofs.
-
Tilkynna þarf vinnuveitanda um töku foreldraorlofs í síðasta lagi 6 vikum áður en farið er í orlofið.
Ekki má segja barnshafandi konu eða starfsmönnum í fæðingar- og/eða foreldraorlofi upp starfi sínu, nema gildar og rökstuddar ástæður séu fyrir hendi.
Nánari upplýsingar má nálgast á Ísland.is
Um fæðingarorlofsmál á vef velferðarráðuneytisins

