Dagforeldrar
- Dagforeldrar annast gæslu barna í heimahúsum. Starfstími er virka daga og er dvalartími barna mismunandi, en aldrei lengri en níu klukkustundir í senn.
- Flest börn í gæslu hjá dagforeldrum eru á aldrinum eins til þriggja ára, þó geta yngri eða eldri börn verið í gæslu hjá dagforeldrum.
- Dagforeldrar eru sjálfstætt starfandi og ákvarða yfirleitt sína gjaldskrá sjálfir en borga þarf fyrir dvöl hjá dagforeldri.
- Sveitarfélög niðurgreiða hluta kostnaðar ef dagforeldrið er með leyfi frá sveitarfélaginu til að starfa sem dagforeldri.
- Hægt er að fá upplýsingar um dagforeldra á skrifstofum sveitarfélaga.
Sjá sveitarfélagið mitt
Upplýsingar um daggæslu í heimahúsum á Island.is

