Verkefni

Markmið verkefnisins var að safna haldbærum upplýsingum um ýmsa þætti sem tengjast búsetu innflytjenda hér á landi. Spurt var um vinnu þeirra, menntun og reynslu, hvaða upplýsingar þeir hafa um réttindi sín og skyldur, hvort þeir nýta sér þjónustu sveitarfélaga eða verkalýðsfélaga, skólagöngu barna þeirra, þátttöku þeirra í félagsstarfi, tungumálakunnáttu og viðhorf til ýmissa málaflokka, svo nokkur atriði séu nefnd.

Tæplega 800 manns svöruðu spurningarlista og má finna niðurstöður könnunarinnar hér að neðan.



Til baka, Senda grein, Prenta greinina