Lífeyrissjóður
- Allir verða að greiða í lífeyrissjóð. Dregin eru 4% af dagvinnulaunum til greiðslu í lífeyrissjóð en atvinnurekandi greiðir að minnsta kosti 6% á móti.
- Sumir lífeyrissjóðir endurgreiða ríkisborgurum ríkja utan EES-svæðisins hluta þessara gjalda þegar þeir flytja frá landinu.
- Hlutverk lífeyrissjóða er að tryggja þeim sem eiga aðild að þeim ellilífeyri til æviloka og veita þeim og fjölskyldum þeirra tryggingu fyrir tekjumissi af völdum starfsorkumissis og andláts.
-
Lífeyrissjóðir greiða ellilífeyri til æviloka í hlutfalli við greidd gjöld á starfsævinni.
Lífeyrisréttindi einstaklinga - bæklingur
Landssamband lífeyrissjóða
Til baka,
Senda grein,
Prenta