kaup á húsnæði
Kaup á húsnæði
-
Erlendir ríkisborgarar sem eiga lögheimili á Íslandi mega eiga íbúðarhúsnæði hérlendis. Þeir geta sótt um lán hjá
Íbúðalánasjóði til íbúðakaupa með sömu skilyrðum og íslenskir ríkisborgarar.
-
Ef útlendingur vill eiga húsnæði á Íslandi áfram, þótt hann flytji af landi brott, þarf hann að sækja um leyfi til þess. Erlendir ríkisborgarar sem ekki eiga lögheimili hér á landi geta sótt um leyfi til íbúðakaupa hjá
Innanríkisráðuneytinu.
Íbúðalánasjóður
Íbúðalánasjóður lánar peninga til kaupa á húsnæði og byggingum. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að auknum möguleikum fólks til að eignast og leigja húsnæði á viðráðanlegum kjörum. Umsóknir um lán fást hjá Íbúðalánasjóði.
Borgartúni 21
105 Reykjavík
Sími: (+354) 569-6900
|
Ásamt Íbúðalánasjóði lána íslenskir bankar peninga til kaupa á húsnæði og byggingum. Hægt er að nálgast upplýsingar um lánakjör bankanna á heimasíðum þeirra og með því að tala við þjónustufulltrúa í útibúum þeirra.
Kaup og sala
-
Einungis löggiltir fasteignasalar og lögmenn mega hafa milligöngu um fasteignaviðskipti. Misjafnt er hvaða gjald er sett upp fyrir slíka þjónustu.
-
Einstaklingum er heimilt að sjá um fasteignaviðskipti sín án milligöngumanns en verða að gæta þess að rétt sé staðið að málum enda miklir hagsmunir að veði.
-
Seljandi á að veita greinargóðar upplýsingar um ástand eignarinnar og gæta þess að sölu- og kynningargögn séu í samræmi við raunverulegt ástand.
-
Kaupandi tryggir betur stöðu sína með því að skoða eign vandlega áður en kauptilboð er gert.
-
Æskilegt er að kaupandi og seljandi kynni sér hvaða ákvæði gildi um mögulega ábyrgð á göllum á eign.
-
-
Annað hjóna má ekki selja eða ráðstafa íbúðarhúsnæði sem þau búa í nema með samþykki hins. Sama gildir um eign hjóna sem atvinna annars eða beggja fer fram í.
Samningar og skjöl