Personal identification number (ID No.)

Kennitala

All individuals that establish permanent residence in Iceland shall be registered in the National Registry and need an identification number (kennitala) that is a ten digit long number.

The first six digits are the individual's birthday, month and year.

In a matter of speaking, the identification number is the key to the Icelandic society.

It is necessary to have been issued an identification number in order to register legal residence in Iceland, to get a tax card, open a bank account and to apply for a home telephone and internet connection.

An identification number and registration of a legal domicile are not the same thing and even though you have an Icelandic identification number, this does not necessarily mean that you have registered your legal domicile in Iceland

Employees of Registers Iceland give information on whether a person has a registered legal domicile in Iceland.


Registers Iceland (Þjóðskrá Íslands)

Borgartúni 21 150 Reykjavík (Map)

Telephone: (+354) 569 2900

Fax: (+354) 569-2949

E-mail: skra@skra.is


 

Identification Number

Kennitala

Allir einstaklingar búsettir á Íslandi eru skráðir í Þjóðskrá og þurfa að hafa kennitölu sem er tíu stafa tala. Segja má að kennitala sé lykillinn að íslensku samfélagi.

  • Fyrstu sex tölur kennitölu taka mið af afmælisdegi, mánuði og fæðingarári viðkomandi.
  • Í Þjóðskrá eru skráðar upplýsingar um lögheimili, nafn, fæðingar, nafngjafir, flutninga, giftingar, sambúð, skilnað, andlát og fleira.
  • Nauðsynlegt er fyrir erlenda ríkisborgara að fá kennitölu hjá Þjóðskrá. Kennitölu þarf að hafa til dæmis til að opna bankareikning, skrá lögheimili og fá sér heimilissíma.
  • Fyrirtæki (atvinnurekendur) og stofnanir sækja um kennitölu fyrir erlenda ríkisborgara og geta einnig sótt um kennitölu fyrir maka og börn viðkomandi.
  • Vátryggingarfélög sem hafa starfsleyfi á Íslandi geta sótt um kennitölu fyrir erlenda ríkisborgara sem eru í viðskiptum hjá þeim.
  • Hægt er að sækja um kennitölu á Netinu en umsóknina þarf að prenta út, skrifa undir og senda í pósti, tölvupósti eða koma með í afgreiðslu Þjóðskrár.

>Umsókn um kennitölu á íslensku (pdf, 415 kb)
>Umsókn um kennitölu á ensku (pdf, 100 kb)

Þjóðskrá (The National Registry)

Borgartúni 24 150 Reykjavík

Sími: (+354) 569 2900

Fax: (+354) 569-2949

Netfang: thjodskra@thjodskra.is


  • Ljósrit af vegabréfi þess sem sótt er um kennitölu fyrir þarf að fylgja umsókninni. Nafn þess er sækir um þarf einnig að koma fram.
  • Erlendur ríkisborgari sem fengið hefur kennitölu hjá Þjóðskrá en hefur ekki fengið dvalarleyfi (á aðeins við um ríkisborgara utan EES) er einungis skráður í utangarðsskrá hjá Þjóðskrá og öðlast engin réttindi fyrr en hann hefur fengið útgefið dvalarleyfi og lögheimili.

Kennitala barna

  • Sækja þarf sérstaklega um kennitölu fyrir börn með erlent ríkisfang en það foreldri (forsjáraðili) sem sækir um kennitöluna verður sjálft að hafa útgefið dvalarleyfi hér á landi og vera skráð í Þjóðskrá. Ekki er nóg að vera með kennitölu eða vera skráður á utangarðsskrá.
  • Með umsókn um kennitölu fyrir börn þarf að fylgja:
  1. Ljósrit úr vegabréfi barnsins.
  2. Ljósrit af frumriti fæðingarvottorðs barnsins.
  3. Ljósrit af fæðingarvottorði barnsins þýddu á íslensku af löggiltum skjalaþýðanda (ekki þarf að þýða vottorð sem eru á ensku, dönsku, norsku eða sænsku).
  4. Afrit af umsókn um dvalarleyfi fyrir barnið hjá Útlendingastofnun (á við um ríkisborgara utan EES).


Senda grein