Course assessment and recognition of vocational qualifications

Mat á námi og starfsréttindum

The Educational Gateway (Menntagátt) gives information regarding assessment and recognition of vocational qualifications and related issues.






 

Course Assessment and Recognition of vocational qualifications

mat á námi
mat á námi

Mat á námi og starfsréttindum

  • Það er hægt að sækja um að fá nám sem stundað var erlendis eða starfsmenntun frá öðru landi viðurkennda hér á landi.
  • Viðurkenningin á aðeins við um starfsgreinar sem eru löggiltar (samþykktar) af íslenskum stjórnvöldum.

Listi yfir löggiltar starfsgreinar

  • Ef menntunin nær ekki yfir löggilta starfsgrein þá er það vinnuveitandinn sem metur hvort hún uppfylli skilyrði til ráðningar.
  • Það er mismunandi hvert á að senda umsóknir um mat á námi. Það fer meðal annars eftir því hvort viðkomandi komi frá landi innan eða utan EES. Hægt er að fá nánari upplýsingar á menntagatt.is og undir Matsferli - tilhögun viðurkenningar.
  • Einstök ráðuneyti meta nám í þeim greinum sem undir þau heyra. Þannig viðurkennir til dæmis heilbrigðisráðuneytið menntun og prófskírteini einstaklinga í heilbrigðisgreinum. Sjá nánar um þessa skiptingu undir Löggiltar starfsgreinar .
  • Umsóknir um mat á námi á framhaldsskólastigi eru sendar í menntamálaráðuneytið.


Menntamálaráðuneytið

Sölvhólsgötu 4 150 Reykjavík

Sími: 545 9500

Tölvupóstur: postur@mrn.stjr.is

 

>Gögn sem þurfa að fylgja

  • Til þess að hægt sé að meta erlent nám þarf að leggja fram fullnægjandi gögn um það nám sem var stundað.
  • Afrit af prófskírteini, ásamt þýðingum sem eru unnar af löggiltum skjalaþýðendum. Þýðingarnar mega vera á ensku eða Norðurlandamáli.

Sjá lista yfir löggilta skjalaþýðendur.

Það sem þarf að koma fram er:

  1. Námsgreinar og lengd námsins í árum, mánuðum eða vikum.
  2. Starfsþjálfun ef hún er hluti af náminu.
  3. Starfsreynsla.
  4. Þau réttindi sem námið veitir í heimalandinu.


Senda grein