Skráning ökutækis
Skráning
-
Það þarf að skrá og skoða alla bíla (ökutæki almennt) sem eru fluttir til landsins áður en þeir eru teknir í notkun hérlendis.
-
Bílarnir eru skráðir í ökutækjaskrá Umferðarstofu. Skráðar eru upplýsingar um gerð bílsins, eigendur, gjöld og fleira.
-
Við skráningu er númersplötu úthlutað (fastanúmer bílsins), bíllinn er tollafgreiddur og skoðaður á skoðunarstofu.
-
Bíllinn fær fulla skráningu þegar hann hefur verið skoðaður og tryggður.
-
Skráningarskírteini, sem eigandi bílsins fær eftir að hann hefur verið skráður, á alltaf að geyma í bílnum.
Afskráning
-
Það má afskrá bíl ef hann er ónýtur eða ef það á að flytja hann úr landi.
-
Bílar sem eru ónýtir á að skila til söfnunarstöðva eins og Vöku eða Hringrásar og þá fæst sérstakt skilagjald fyrir bílinn.
Sjá söfnunarstöðvar og útborgun skilagjalds.
-
Skoðunarstofurnar eða Umferðarstofa borga skilagjaldið þegar númersplötunum af bílnum er skilað inn til þeirra, ásamt vottorði frá söfnunarstöðvunum um að bílnum hafi verið skilað.
-
Frekari upplýsingar má nálgast hjá Umferðastofu
Eyðublöð vegna skráningar ökutækja

