Ökupróf
Ökuréttindi fást að loknu ökunámi hjá ökukennara og í ökuskóla en almennur ökuprófsaldur hér á landi er 17 ár.
-
Til að öðlast heimild til próftöku þarf að sækja um ökuskírteini hjá sýslumannsembættum landsins en í Reykjavík hjá lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins. Hægt er að sækja um hvar sem er á landinu óháð búsetu.
-
Ökupróf eru haldin reglulega á vegum Frumherja sem hefur þjónustustaði um allt land og sér um framkvæmd prófa í umboði Umferðastofu.
-
Þegar próftökuheimild er fengin er skriflegt próf tekið. Verklegt próf getur einungis farið fram þegar skriflegu prófi er náð.
-
Greiða þarf sérstaklega fyrir ökupróf og er greitt um leið og umsókn er lögð inn.
-
Leyfilegt er að hafa með sér túlk í bæði prófin en umsækjandi þarf sjálfur að greiða fyrir þá þjónustu.
Allt um ökunám og ökuréttindi hjá Umferðarstofu
Framkvæmd ökuprófa hjá Frumherja
Umsókn og afhending ökuskírteina í Reykjavík

