Ýmis félagasamtök

Fjölmörg félagasamtök eru starfandi hér á landi og sinna þau aðstoð og ráðgjöf. Markmið þeirra flestra er meðal annars að vekja athygli á réttindum minnihlutahópa og ýmsum málefnum þeim tengdum.

Alnæmissamtökin

Hverfisgötu 69
101 Reykjavík
Sími: (+354) 552-8586
Netfang: aids@aids.is

Opið er kl. 13–16 mánudaga til fimmtudaga. Félagsráðgjafi er með símaráðgjöf og viðtöl alla miðvikudaga. Starfsmenn tala íslensku, ensku og Norðurlandamálin.


Samtökin ‘78 - félag lesbía og homma á Íslandi

Laugavegi 3
101 Reykjavík
Sími: (+354) 552-7878

Félagsráðgjafar eru til viðtals og hægt er að fá viðtal á ensku. Ýmsir hópar starfa innan samtakanna, til dæmis ungmennahópur, og haldnir eru AA-fundir á ensku.


Félag Anti-Rasista

Netfang: contact@antirasista.net

Félag Anti-Rasista var stofnað árið 2006 og er markmið þess að berjast gegn fordómum af öllum tegundum á Íslandi. Þeir sem hafa áhuga á að ganga í félagið geta fyllt út umsókn á heimasíðu félagsins: www.antirasista.net


Íþróttafélagið „Stál úlfur“

Stofnað 10. januar 2010

Íþróttamiðstöðin Kórinn

Vallarkór 14

203 Kópavogur


Til baka, Senda grein, Prenta greinina