Neyðaraðstoð 112
-
Allir geta hringt í 112 úr venjulegum síma (landlínu) og farsímum (GSM) þar sem samband næst.
-
Samband næst við 112 þó að síminn sé lokaður eða þó að símkort vanti í farsímann.
-
Aðeins á að hringja í 112 ef neyð er fyrir hendi en þó er betra að hringja en að sleppa því ef viðkomandi er ekki viss.
LÖGREGLAN - Almennar upplýsingar um lögregluna og hlutverk hennar.
EITRUNARMIÐSTÖÐ - Eitrunarmiðstöð er neyðarþjónusta þar sem hægt er að fá upplýsingar í síma um eiturefni og viðbrögð við eitrunum. Upplýsingar um neyðarsímanúmer og fleira.
AÐSTOÐ OG RÁÐGJÖF FYRIR KONUR - Almennar upplýsingar fyrir konur sem verða fyrir heimilisofbeldi, hvert þær geta leitað eftir aðstoð og ráðgjöf.
KYNFERÐISLEGT OFBELDI - Almennar upplýsingar um neyðarmóttökur, aðstoð og ráðgjöf sem þolendum kynferðisofbeldis stendur til boða í kjölfar árásar.
ELDVARNIR - Almennar upplýsingar um eldvarnir á nokkrum tungumálum og hvað eigi til bragðs að taka ef kviknar í.
GISTISKÝLI - Upplýsingar um opin gistiskýli í Reykjavík.
ÁFENGIS- OG VÍMUEFNAVANDAMÁL - Upplýsingar um hvert hægt sé að leita ef upp koma vandamál vegna áfengis- og/eða vímuefnanotkunar.

