Eldvarnir
Mikilvægt er að eldvarnir séu í lagi á heimilum og að íbúar séu með á hreinu hvað eigi til bragðs að taka ef kviknar í. Til að koma í veg fyrir slys eða dauðsföll af völdum elds er nauðsynlegt að hafa nægjanlega marga og rétt staðsetta reykskynjara inn á heimili. Flóttaleiðir verða að vera til staðar, nægilega margar og greiðfærar, slökkvibúnaður þarf að vera til staðar og síðast en ekki síst að hafa neyðarnúmerið 112 á hreinu.
Nánari upplýsingar á íslensku ásamt upplýsingum á nokkrum tungumálum um eldvarnir er að finna á vefsíðu Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins – www.shs.is

